Taktur Tímans eríslensk útgáfa af hinu margverðlaunaða Take Time. Taktur Tímans er aðgengilegt og skemmtilegt samvinnuspil þar sem þið skiptist á að leggja niður tólf spil, eitt spil í einu, í kringum klukku með sérstökum reglum fyrir hvert próf. Í spilinu eru 40 klukkur — próf sem þið spilið í gegnum.
Tíminn sjálfur er að leggja fyrir ykkur próf!
Taktur Tímans er samvinnuspil sem fer með ykkur í ævintýri þar sem hver áskorunin rekur aðra í einstökum heimi. Þið ferðist saman sem teymi í gegnum táknræna veröld sem hver tengist lykilstöðum í ljóðrænu ferðalagi frá „vöknun“ til „endurfæðingar“.
Taktur Tímans er meira en kænskuspil — það er sameiginlegt ferðalag. Spil sem fær ykkur til að hægja á ykkur, taka inn andrúmsloftið, ræða saman og skilja hvert annað, og byggja upp traust. Með hverri spilun kemur nýr rammi sem kallar á ferska hugsun, og þið þurfið að aðlagast til að komast áfram.
Hver klukka kemur með nýrri upplifun. Undir einfaldleikanum liggur einstök ásköorun sem er hönnuð til að prófa hæfileika ykkar í að sjá fyrir, hlusta og hugsa eins og hópur. Taktur Tímans fagnar samskiptum, sameiginlegum uppgötvunum og ákvörðunum teknar sem lið. Aðgengilegt spil sem hægt er að spila aftur og aftur.
VERÐLAUN OG VIÐURKENNINGAR
- 2026 Spiel des Jahres – Meðmæli
- 2026 Nederlandse Spellenprijs Best Family Game – Tilnefning
- 2026 As d’Or – Jeu de l’Année Initié – Tilnefning
- 2025 Golden Geek Light Game of the Year – Tilnefning
- 2025 Golden Geek Best Party Game – Tilnefning
- 2025 Golden Geek Best Cooperative Game – Tilnefning






Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.