Morð í Buckinghamhöll! Partíprinsessan Arabella Wellington fannst látin inni í Buckinghamhöll eftir ríkulega veislu. Opinberlega er sagt þetta hafi verið slys, en skuggalegar vísbendingar eru um eitthvað mun gruggugra. Stígið inn í konungleg híbýlin og afhjúpið sannleikann í þessu óleysta máli.
Rannsakið 43 sönnunargögn í grípandi leynilögregluspili, meðal annars blaðaúrklippur, opinber skjöl, ljósmyndir, boðskort, samfélagsmiðlapósta og fleira. Skoðið hvert smáatriði, tengið vísbendingar og ljóstrið upp hvað raunverulega gerðist þetta örlagaríka kvöld.
Brjótist inn í síma prinsessunnar til að finna falin skilaboð og stafrænar vísbendingar sem munu nýtast í rannsókninni.
Leysið málið sjálf eða í góðum hópi vina.Hentar fólki sem elskar að leysa þrautir og glæpamál, og að komast úr flóttaherbergjum.
Erfiðleikastig: 3 af 5






Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.