Bítta, selja og kaupa – Markaður með notuð borðspil

Skoðað: 3

Spilavinir, spilasafnarar og spilaáhugafólk! – Nú er tækifærið að bítta, selja og kaupa lítið eða mikið notuð borðspil og jafnvel ný. Spilavinir opna kjallarann hjá sér og setja upp borð fyrir einstaklings spilasölu.

Fyrirkomulagið

Þeir sem koma og versla.

Semja við hvern seljanda fyrir sig. Við mælum með að taka pening með sér þar sem ekki er líklegt á að margir verði með posa.

Þeir sem ætla koma og selja

Til að auka líkurnar á að fá borð, þá er best að láta okkur vita fyrirfram að þið ætlið að selja. Þá getum við tekið borð frá. Annars teljum við að allir komast að sem vilja.

Það kostar ekkert að koma og selja, en hver og einn spilasali heldur utan um sína sölu.

Þeir sem ætla að selja geta byrjað að stilla upp og koma sér fyrir kl 12:00. Markaðurinn sjálfur opnar svo kl. 13 og er opin til kl. 16.

Við hellum upp á kaffi og stefnum í skemmtilegan dag með spilaáhugamönnum að spila, tala um, selja og kaupa spil. Svo er auðvitað um að gera að grípa í spil inn á milli.

Hér er atburðurinn á Facebook.

Skrifa athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Karfa
;