Camel Up komið

Skoðað: 7

Camel Up er frumlegt fjölskylduspil þar sem leikmenn í hlutverki ríkra Egypta koma saman í eyðimörkinni til að veðja á úlfalda. Úlfaldahlaupið er spennandi og menn verða að hafa sig allan við til að sjá út líklega sigurvegara.

Spilið vann Spiel Des jahres verðlaunin í ár og ekki furða þar sem það er sniðugt, framleiðslan til fyrirmyndar og heldur manni á tánum.

Leikmenn skiptast á að færa úlfaldana með sérstökum teningapýramída, veðja á dýrin og setja niður vatnsból. Mikilvægt er að vera fyrstur að veðja á þann úlfalda sem þér finnst líklegur til sigurs en fljótfærnin verður oft til þess að maður tapar stigum því maður veðjaði á rangan hest… úlfalda meina ég.

Einnig er hægt að veðja á þann sem þér finnst líklegastur til að verða seinastur og svitna síðan þegar ljóst er að hann er allt í einu orðinn fremstur.

Svo geta úlfaldar sníkt sér far öðrum. Þeir eru lævísir.
Svo geta úlfaldar sníkt sér far öðrum. Þeir eru lævísir.

Camel up er fyndið og hentar fyrir alla átta ára og eldri. Það er fyrir 2-8 leikmenn og spilast á svona 30 – 45 mínútum.

Skrifa athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Karfa
;