Skoðað: 479
Drykkjuspil sem kemur með löngum lista af fyrirvörum frá framleiðanda (drekkið á ábyrgan hátt o.þ.h.), enda hannað með það eitt að markmiði að koma drykkjum sem hraðast ofan í fólk. Aðeins fyrir 20 ára og eldri.
Einfalt í spilun – einfaldlega skiptist á að draga spil efst úr stokknum. Þegar þú átt leik, lestu spilið upphátt. Annað hvort þú eða hópurinn þarf að drekka út frá því sem stendur á spilinu.
SolviKaaber –
Ef að þið viljið spil sem segir ykkur að drekka þá er þetta fullkomið í þær aðstæður. Örfá spil sem eru of bandarísk fyrir okkur íslendinga að skilja en það er létt að henda þeim bara til hliðar og draga nýtt.