Dog Cards

2.950 kr.

Aldur: 8 ára og eldri
Fjöldi: 2-4 leikmenn
Spilatími: 20 mín.
Höfundur: Michael Kiesling, Wolfgang Kramer

Availability: Til í verslun

Vörunúmer: 42-75019 Flokkur:
Skoðað: 0

Í Dog Cards reynir þú og liðsfélagi þinn að vera á undan að klára röð með 14 spilum. Þið megið hjálpast að, skipta á spilum af miðju borðinu eða gramsa í bunkum eftir spilinu sem ykkur vantar. En gætið að: Hitt liðið er líka með einhverjar brellur í undirbúningi!

Þetta spil er líka hægt að nota sem nýjan stokk fyrir Dog Royal.

Í stokknum eru 104 spil númeruð frá 1-14, með 8 þjófum og 8 jókerum að auki. TIl að stilla upp fær hvert ykkar sjö eða fimm spil á hendi (fer eftir fjölda leikmanna) og þið leggið röð með 13 spilum sem snúa upp á borðið. Ef eitthvert númeruðu spilanna er á stað sem passar við töluna á því (til dæmis ef tvistur væri spil númer 2 í röðinni) hendið því og setjið nýtt úr stokknum í staðinn. Þegar þú átt leik, þá máttu framkvæma eina af eftirfarandi aðgerðum:

  1. Henda töluspili, kaupa töluspilið sem er á þessum stað í röðinni, og draga nýtt spil til að fylla í eyðuna. Jóker getur valið sér hvaða spil sem er.
  2. Byrja á nýrri röð með 1/11 spili eða 13, eða bæta í núverandi röð. (Í liðaspili, þá máttu spila í þína röð eða liðsfélaga þíns.) Þú verður að bæta við spili í réttri röð, með jóker í stað hvaða spils sem er ekki 14.
  3. Skipta á töluspili fyrir jóker í röð einhvers leikmanns, og taka jókerinn á þína hendi.
  4. Nota sérstakan kraft einhvers spils, þar sem þjófurinn leyfir þég að stela spili af enda raðar annars leikmanns; 14 gefur þér hvaða spil sem er í frákastinu; 7 tekur eitt af sjö efstu spilunum í stokknum, og með 4 getur þú keypt eitthvert fyrstu 8 spilanna í röðinni á miðju borðinu.
  5. Henda spili og draga nýtt úr stokknum.
  6. Þegar þú klárar röð með því að setja 14 á hana, settu hin 13 spilin í frákastið, og stokkið frákastið í nýjan stokk ef þarf.
Aldur

Athugið

Varan hentar ekki börnum yngri en þriggja ára þar sem hún getur innihaldið smáa hluti

Fjöldi leikmanna

, ,

Merkingar

Varan er CE merkt

Útgáfuár

Útgefandi

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Vertu fyrst/ur til að skrifa umsögn um “Dog Cards”

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Karfa
;