Húsið er hannað sem aðgengilegur stokkur með spurningum og viskukornum. Spurningarnar eru valdar með það fyrir augum að styrkja tengsl. Spurningarnar taka til að mynda á hugðparefnum eins og gleði, skömm, þakklæti, sorg, trú, kvíða og öðru sem við ræðum kannski ekki í óspurðum fréttum.
Húsið inniheldur 107 spurningar og viskukorn til að kveikja samtöl og vangaveltur um lífið og tilveruna. Spjöldin eru sérsniðin af fjölskyldufræðingum til þess að gefa einstaklingum tækifæri til að opna dyr hjartans. Húsið er fyrir þá sem vilja tengjast sjálfum sér og öðrum betur. Húsið er spil sem er gott að opna við matarborðið, í saumaklúbbnum, í fjölskylduboði, á bílferð eða á þeim stað sem hentar.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar