Te ástarinnar
Kiss Me Quick er sérstök ástarblanda frá Østerlandsk 1889 Copenhagen. Það er blanda af svörtu tei með bragðmiklum ávöxtum eins og brómberjum, hindberjum, ferskjum, rósaknúpum og hindberjalaufi.
Bragð
Teið er klassískt svart te með fallegum og sterkum ávaxtatónum.
Uppáhellingur
Kiss Me Quick er byggt á klassísku svörtu tei. Því þarf það að liggja í 3 mínútur í 100°C heitu vatni til að fá ákjósanlegasta bragðið.
Hvað er svart te?
Svart te, eins og grænt og hvítt te, kemur af teplöntunni Camellia Sinensis. Svart te er algerlega gerjað (þ.e. oxað) og er sú tegund tes sem hefur lengstan framleiðsluferil: tína, þurrka, rúlla, gerja, og rista. Til að ná sem mestum gæðum eru aðeins efstu, þunnu og dökku sprotarnir tíndir. Tvö lauf og knúpur eru tínd saman, þ.e. tvö lauf og toppsprotinn á milli þeirra.
Meira um teið
Þetta box inniheldur 12 píramídatepoka, sem gerðir eru úr PLA, náttúrulegu hráefni sem brotnar auðveldlega niður í náttúrunni.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar