Te hefðarkonunnar
Lady Grey Organic er lagleg, lífrænt ræktuð blanda úr svörtu te eins og Keemun, Ceylon og Darjeeling sem í er bætt Bergamot og hinu klassíska græna tei Gunpowder. Þetta er enn ein hágæðablandan úr smiðju Østerlandsk 1889 Copenhagen.
Bragð
Það er ríkulegt tebragð, en með mildara bergamot bragði ef miðað er við hinn klassíska Earl Grey. Í grunninn er þetta Ceylon te sem, meðal annarra, hentar mjög vel með mjólkurdropa út í.
Uppáhellingur
Lady Grey Organic er nær eingöngu úr svörtu tei, svo það ætti að liggja í 95-100°C heitu vatni í 3-4 mínútur til að fá ákjósanlegasta bragðið.
Meira um teið
Þessi dós inniheldur 125 gr. af lausu tei.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar