Glæpur hefur verið framinn! Fórnarlambið getur ekki talað — en það getur teiknað, og þannig getur það hjálpað rannsakendum að finna út hver í mannþvögunni er glæpamaðurinn! En þessi gruggugi glæpon mun gera allt sem hægt er til að fela fótspor sín, en getur þú náð honum áður en síðustu skilaboðin berast?
Í Last message gefur fórnarlamb glæpsins vísbendingar í fjórum umferðum til að hjálpa rannsakendum að finna út hver glæpamaðurinn er. Til að gefa vísbendingu hefur fórnarlambið 30 sekúndur til að teikna og skrifa í 3×3 reita mynd — en áður en vísbendingin er afhent, fær glæpamaðurinn að hreinsa hluta myndarinnar.
Ef ekki hefur tekist að bera kennsl á glæpamanninn fyrir lok fjórðu umferðar, þá sigrar hann; annars sigra rannsakendur og fórnarlambið.
VERÐLAUN OG VIÐURKENNINGAR
- 2022 UK Games Expo Best Party Game People’s Choice Award – Sigurvegari
- 2022 UK Games Expo Best Party Game – Tilnefning
- 2021 Golden Geek Best Party Game – Tilnefning
- 2021 5 Seasons Best International Party&Coop – Tilnefning
Umsagnir
Engar umsagnir komnar