Morð í skugganum á háleynilegri herstöð. Area 51 er þekkt fyrir að prófa geimverutækni, en núna er vverið að fela aðra hluti þar. Þann 22. september 2024 dó efnaverkfræðingurinn Noémie Boljvic þar undir grunsamlegum kringumstæðum. Þið hafið fengið skilaboð sem hringja viðvörunarbjöllum. Rannsakið svæði með takmörkuðum aðgangi og afhjúpið sannleikann í þessu óleysta máli.
Takið ykkur hlutverk leynilögreglu og afhjúpið málið. Rannsakið 47 sönnunargögn í spili um óleyst morðmál — meðal annars leynilegar teikningar af hæðum, handskrifaða minnispunkta, greinar úr fjölmiðlum, og dulkóðaða kóða.
Aflæsið síma Noémie á netsvæði spilsins til að komast í símtalaskrá, kort, skilaboð, vafrasögu, og fleira. Aukavísbendingar um sökudólga og hljóðklippur er líka að finna þar, sem bætir dýpt í þetta áhugaverða mál.
Spilið hentar einni manneskju, og líka fleiri sem vinna saman. Hentar fólki sem elskar að leysa þrautir og glæpamál, og að komast úr flóttaherbergjum.
Erfiðleikastig: 3,5 af 5









Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.