Ráðgáta í Dublin kastala! Rísandi stjarnan, kvikmyndaleikstjórinn Kendra Campbell-Reid dó þegar hræðilegur atburður átti sér stað í Dublin kastala. Yfirvöld grunar að um slys hafi verið að ræða, en vísbendingar sem komið hafa fram benda á eitthvað illkvittið.
Rannsakið 44 sönnunargögn í þessu óleysta máli, meðal annars ljósmyndir af vettvangi, blaðagreinar, opinber skjöl, pósta af samfélagsmiðlum og vitnaskýrslur. Tengið saman vísbendingar, eltið sönnunargögnin og finnið út hvað gerðist í raun.
Brjótist inn í síma fórnarlambsins til að afhjúpa falin skilaboð, stafrænar vísbendingar og sönnunargögn af netinu sem keyra rannsóknina áfram.
Leysið málið sjálf eða í góðum hópi vina. Hentar fólki sem elskar að leysa þrautir og glæpamál, og að komast úr flóttaherbergjum.
Erfiðleikastig: 3,5 af 5










Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.