Sudoku var að verða banvænt. Getur þú leyst glæpinn?
Fullkomin gjöf fyrir fólk sem elskar sudoku og morðgátur — 80 klókar og litríkar mini-morðgátur til að leysa. Staðsettu sökudólgana, afhjúpaðu morðingjann! Ef Bella var í eldhúsinu, Douglas við gluggann og Cora sat á stólnum, hver var í sama herbergi og fórnarlambið?
Það er morðingi á sveimi. Hefur þú vitsmunina til að leysa málið? Eða munt þú senda saklausan sjónarvott í fangelsi?
Eins og sagt var frá í Financial Times, þá er Murdoku byltingarkennd gátubók sem blandar morðgátum við litríkar sudoku. í bókinni eru 80 glæpir sem eiga sér stað í m.a. kaffihúsi, lúxusíbúð við ströndina, fullu óperuhúsi, bókabúð og fleiru!
Ferskur snúningur með sudoku. Með reita-lógík fylgir hver einasta gáta grunnreglunni: hver sökudólgur er í mismunandi röð og dálki. Hver gáta er myndskreytt í lit með handteiknuðum persónum og fjölbreyttum glæpavettvöngum, hlutum og jafnvel dýrum. Engin tvö mál líta eins út.
Skemmtileg bók fyrir unglinga, fullorðna og fullorðnari — með erfiðleikastigum frá byrjendum til snillinga.
Getur þú leyst öll 80 málin? Fyrsta glæpamálið bíður þín…









Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.