Ekki eins og það hafi vantað, en hér eru 200 ný spjöld í Shit Happens, sem eru súper sexí og kinkí og allt það versta sem ykkur dettur í hug. Skellið því á skalann einu og sér eða blandið því við upprunalega spilið.
Shit happens er ótrúlega fyndin og skemmtileg blanda af Timeline og Cards against humanity. Á hverju spili er einhver hræðilegur atburður sem hefur gerst, eða GÆTI komið fyrir þig. Eins og: Svermi býflugna ræðst á þig eða Þú sérð pabba þinn nakinn. Hópur sérfræðinga í geðheilsu er búinn að raða spilunum eftir ömurðarskala frá einum upp í hundrað. Leikmenn þurfa að geta raðað tíu spilum í rétta röð til að vinna.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar