Ferðist djúpt í fornan skóg í The Trials of the Forest. Finnið leið ykkar í gegnum flókna stíga, safnið afurðum og veljið hvaða afrek þið viljið vinna. Þið getið tínt ber í rólegheitum eða leitað að týndum dýrgripum í hættulegum leiðöngrum; setið fyrir keppinautum ykkar eða komið þeim á ovart með ljúffengum tebolla. Hvernig sem þið farið að, þá mun aðeins eitt ykkar koma út sem sigurvegari.
The Trial of the Forest er kænskuspil með frásagnarstíl, og felur í sér umsýslu aðfanga, margnota spil, stigvaxandi hæfileika, bardaga og leikborð sem þróast. Hver ákvörðun mótar sögu ykkar og býr til einstaka frásögn og leið til persónulegs sigurs.














Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.