Moriarty er snúinn aftur! Í þetta skiptið hefur hann fengið skósveina sína til að stilla upp sprengjum á sjö stöðum um London. Liðið hans Sherlock þarf að aftengja allar sprengjurnar fyrir miðnætti, svo þjóðin falli ekki í kaos.
Í Time Bomb Evolution fær hver ykkar leynihlutverk sem er annað hvort skósveinar Moriarty eða félagar Sherlock Holmes. Svo fáið þið öll nokkur spil. Þið skoðið spilin ykkar, stokkið og raðið óséðum á grúfu fyrir framan ykkur. Félagar Sherlock sigra spilið ef þeim tekst að aftengja allar sprengjurnar með því að finna öll „SUCCESS“ spilin.
Í hverri umferð velur eitt ykkar spil fyrir framan annan leikmann og snýr því við. Ef það er „SUCCESS“ spil, þá eru félagar Sherlock skrefinu nær að sigra. Annars er þetta sprengjuspil, og hvert kveikir á ógn eftir því í hvaða lit það er. Skósveinar Moriarty sigrar ef fjórar ógnir í sama lit koma fram.
Þið megið ræða hvaða spilum ætti að snúa við, en gætið að því að skósveinar Moriarty gæti verið að afvegaleiða félaga Sherlock.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar