Glæsilegar dósir, ljúffengt innihald
Tedósirnar frá Østerlandsk 1889 Copenhagen eru fallegar og litríkar og sóma sér í hvaða eldhúsi sem er. Það gerir þær að tilvalinni gjafavöru, eða einfaldlega að einhverju til að láta eftir sér.
Rúnnað og rjómakennt
Vanilla Cream er svart te, blandað úr klassísku Keemun tei og bragðbætt með vanillu og karamellu. Keemun te er létt svart te, og inniheldur því mun minna af tanníni en annað svart te.
Bragð
Klassískt svart te með mjúku og rjómakenndu vanillu- og karamellubragði. Fullkomið eftirmiðdagste.
Uppáhellingur
Vanilla Cream er byggt á klassísku svörtu Keemun tei, svo það ætti að liggja í 100°C heitu vatni í 3 mínútur til að fá ákjósanlegasta bragðið.
Hvað er svart te?
Svart te, eins og grænt og hvítt te, kemur af teplöntunni Camellia Sinensis. Svart te er algerlega gerjað (þ.e. oxað) og er sú tegund tes sem hefur lengstan framleiðsluferil: tína, þurrka, rúlla, gerja, og rista. Til að ná sem mestum gæðum eru aðeins efstu, þunnu og dökku sprotarnir tíndir. Tvö lauf og knúpur eru tínd saman, þ.e. tvö lauf og toppsprotinn á milli þeirra.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar