Duel of Meloch

14.980 kr.

Aldur: 14 ára og eldri
Fjöldi: 1-2 leikmenn
Spilatími: 45 mín.
Höfundur: Jamey Stegmaier

Availability: Á lager

- +
Vörunúmer: STM672 Flokkur: Framleiðandi:

Duel of Meloch er sjálfstætt spil sem sameinar gangverk tveggja spila: Scythe og Expeditions, og býr til 45 mínútna einvígi. Annar leikmaðurinn notar reglur Scythe og íhluti þess — með nýrri fylkingu og mottu; á meðan hinn leikmaðurinn notar Expeditions reglurnar og íhluti þess — með nýjum vélum (e. mech), persónu og félaga. Svo lengi sem þú kannt annað þessara spila og félagi þinn hitt, þá getið þið spilað Duel of Meloch og þið þurfið ekkert annað en Duel of Meloch til að spila.

Einvígið á sér stað á þéttu svæði á núyju tveggja-hliða korti — aðeins 10 staðir og 2 vötn — í keppni um að fá 4 stjörnur á hinni nýju tveggja-hliða Sigurbraut, svo hver umferð skiptir gífurlegu máli. Hinn lævísi Meloch jafnar út spilið með því að gefa andstæðingnum smá upplyftingu í hvert sinn sem þú færð stjörnu.

Allar Scythe fylkingarnar, motturnar, og spjöld passa með Duel of Meloch, og eins á við um Expeditions vélar, persónur, félaga og uppgötvunarspil. Á móti eru íhlutir í Duel of Meloch líka nothæfir í Scythe og Expeditions.

Aldur: 14 ára og eldri

Spilatími: 30-60 mín.

Útgáfuár: 2026

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Duel of Meloch”

Þessi vefur notar Akismet til að minnka ruslpóst. Smelltu hér til að vita meira um hvernig gögnin þín eru meðhöndluð.

Karfa