Ice Cool 2 er sjálfstætt spil, en líka frábær viðbót við Ice Cool — saman búa þau til risastóran skóla og enn meira fjör! Spil fyrir 6 ára og eldri þar sem börn jafnt sem fullorðnir hafa mikið gaman af. Hrikalega einfalt og gott spil.
Það er alveg að koma nestistími og allar mörgæsirnar fá þá loksins fiskinn sinn sem þær eru búnar að bíða eftir í allan dag. En það eru nokkrar óþekkar mörgæsir sem halda að þær séu nógu snöggar til að ná í fiskinn áður en nestistíminn byrjar. Þær gleyma þó einu, gangaverðinum.
Í þessu frábæra spili erum við að reyna að ná fiskinum án þess að rekast á gangavörðinn, sem við skiptumst á að leika. Skjóttu mörgæsinni þinni í gegnum hurðarnar eða jafnvel yfir vegginn til að ná fiskinum áður en gangavörðurinn nær þér.
Sigurjón Magnússon –
Ég spilađi ice cool 2 í fyrsta skiptiđ međ 6 ára dóttur minni og 12 og 13 ára synum mínum og spiliđ sló heldur betur í gegn, þađ sem átti ađ vera eitt til tvö snögg spil urđu talsvert fleirri og allir skemmtu sér vel.
Ég mæli međ þessu spili fyrir alla 6 ára og eldri
Katrín Helga Ágústsdóttir (staðfestur eigandi) –
ICE COOL 2 er mjög skemmtilegt spil sem krefst smá hæfni (í að skjóta mörgæsum í gegnum göt). Spilið er action spil sem ekki gengur út á hraða heldur heppni og hæfni. Gott er að geta spilað á borði sem hægt er að labba hringinn í kringum. Svo fleiri geti spilað mæli ég eindregið með að kaupa ICE COOL líka og setja þau saman – þá fær maður líka fleiri uppsetningarmöguleika.