Skoðað: 216
Hver leikmaður byrjar með 10 spil á hendi. Sá sem á leik þarf að leggja eitt spil ofan á einhvern bunka. Mismunurinn milli tölunnar á spilinu, sem lagt er út, og tölunnar á efsta spilinu í bunkanum má ekki vera meiri en 10, annars er sagt: „11 tekur bunkann!“ og þá þarf viðkomandi leikmaður að taka allan bunkann upp á hendi. Ef það eru fleiri en þrjú spil í bunkanum þá fær viðkomandi eitt bolaspil og þar með rétt til að leggja niður fleiri spil í einu þegar hann á að gera. Markmið spilsins er að losa sig við öll spilin af hendi.
Margrét Arngrímsdóttir –
Gott spil sem er bæði einfalt og skemmtilegt. Er á mínum topp 10 lista. Spila þetta spil mjög reglulega. Tekur lítið pláss og því tilvalið að taka með sér í ferðalög.