Caverna: Cave vs. cave

4.760 kr.

Aldur: 10 ára og eldri
Fjöldi: 1-2 leikmenn
Spilatími: 20-40 mín.
Höfundur: Uwe Rosenberg

* Uppselt *

Uppselt

Þessi vara er ekki til í augnablikinu.
Vilt þú fá tilkynningu þegar hún kemur aftur?

Vörunúmer: MFG3525 Flokkur: Merki: ,
Skoðað: 66

Í þessari sérstöku tveggja-manna útgáfu af Caverna byrjar hvor leikmaður með aðeins tvo dverga og litla holu í fjallinu. Yfir átta umferðir mun fjöldi dverga tvöfaldast, nýjar vistarverur í fjallinu opnast, nýjar byggingar verða smíðaðar og herbergi til að búa í, og svo þarf að grafa eftir dýrmætum málmum.

Nánar tiltekið, þá byrjar hver leikmaður með sitt eigið borð sem er fyllt handahófs-völdum bygginga- og herbergjaflísum á grúfu. Sumar flísar snúa upp, og má kaupa þær frá upphafi. Fjórar aðgerðaflísar eru einnig í boði. Við upphaf hverrar umferðar er nýrri aðgerðarflís snúið við, og leikmenn skiptast á að velja sér aðgerðir, frá tveimur upp í fjórar. Við það að grafa út fjallið verða til fleiri aðgerðir sem hægt er að velja um; sum herbergi er hægt að nota strax og maður tekur þau, en önnur kalla á aðgerðarflís.

Eftir átta umferðir taka leikmenn saman stig fyrir byggingar sem byggðar voru, og gull sem safnað var, til að finna sigurvegara.

VERÐLAUN OG VIÐURKENNINGAR

  • 2017 International Gamers Award – General Strategy: Two-players – Tilnefning
  • 2017 Golden Geek Best 2-Player Board Game – Tilnefning
Karfa
;