Sheriff of Nottingham (2nd edition)

Rated 4.00 out of 5 based on 2 customer ratings
(2 umsagnir viðskiptavina)

8.640 kr.

Aldur: 12 ára og eldri
Fjöldi: 3 til 6 leikmenn
Spilatími: 60 mín.
Höfundur: Sérgio Halaban, André Zatz

Availability: Til í verslun

Minus Quantity- Plus Quantity+
Vörunúmer: CMNSHF003 Flokkur: Merki:
Skoðað: 182

Prinsinn er að koma til Nottingham! Leikmenn í hlutverki kaupmanna sjá komu hans sem tækifæri fyrir skjótfengan gróða með því að selja vörur sínar í borginni sem iðar af lífi vegna komu hans. En það er hængur á. Leikmenn þurfa fyrst að koma vörum sínum inn um borgarhliðið, en það er vaktað gaumgæfilega af fógetanum í Nottingham. Ætlarðu að taka öruggu leiðina og flytja aðeins inn löglegar vörur til að selja eða smygla inn ólöglegum varningi í von um að verða ekki gripinn. Það er vissara að kunna að ljúga þá því fógetinn gerir allt upptækt sem hann getur og setur háar sektir á menn sem reyna að lauma vörum inn í borgina framhjá honum.

Leikmenn skiptast á að vera í hlutverki fógetans. Kaupmennirnir setja vörurnar sem þær ætla með inn í borgina í sérstakan poka sem þeir afhenda síðan fógetanum. Fógetinn getur síðan ákveðið að leita í pokanum hjá hverjum leikmanni. Ef hann finnur eitthvað ólöglegt eða stendur leikmann að því að ljúga að sér þá innheimtir hann sekt en ef fógetinn leitar í poka og finnur ekkert athugavert þá þarf hann að greiða leikmanninum skaðabætur fyrir óþægindinn.

Verður þú heiðvirður kaupmaður? Muntu múta fógetanum með gulli til að sleppa í gegn eða jafnvel borga honum fyrir að leita hjá keppinautunum?

Þessi nýja útgáfa inniheldur uppfærðar reglur, auk viðbóta eins og sjötti kaupmaðurinn, svarti markaðurinn, og fulltrúar fógetans.

Karfa

Millisamtala: 2.280 kr.

Skoða körfuGanga frá pöntun

;