Hvort myndir þú frekar velja? Frábært partýspil þar sem leikmenn reyna að gera upp við sig hvort þeir vilja til dæmis heldur “aldrei sjá sólarljós aftur” eða “líf án tónlistar”.
Leikmenn skiptast á að vera dómarinn, sem reynir að búa til sem erfiðast val úr spilum sem hinir spila á hann og einu sem hann valdi sjálfur. Restin af hópnum velur svo hver fyrir sig hvort spilið þeim finnst skárra. Leikmenn skora stig (eða ekki) í hverri umferð og fyrstur upp í 15 stig sigrar.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar